Aston Villa 2 - 1 Bournemouth
1-0 Carles Gil ('51 )
2-0 Andreas Weimann ('71 )
2-1 Callum Wilson (´90 )
1-0 Carles Gil ('51 )
2-0 Andreas Weimann ('71 )
2-1 Callum Wilson (´90 )
Aston Villa er komið í 16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar eftir sannfærandi sigur á toppliði Championship deildarinnar. Eddie Howe, stjóri Bournemouth, hvíldi nokkra lykilmenn í dag enda liðið í hörkubaráttu um sæti í úrvalsdeildinni.
Eftir markalausan fyrri hálfleik reyndust heimamenn sterkari í seinni hálfleik en það var nýjasti liðsmaður Aston Villa, Carles Gil, sem kom Villa yfir í upphafi seinni hálfleiks með mögnuðu marki.
Andi Weimann tvöfaldaði forystuna á 70.mínútu eftir laglegt samspil Leandro Bacuna og Alan Hutton. Callum Wilson klóraði í bakkann fyrir gestina í uppbótartíma en það var um seinan og góður sigur Aston Villa staðreynd.
Athugasemdir