Ajax 0-0 Feyenoord
Kolbeinn Sigþórsson spilaði sinn fyrsta leik eftir meiðsli í dag þegar Ajax fékk Feyenoord í heimsókn í toppbaráttuslag. Kolbeinn byrjaði á bekknum en var skipt inná í hálfleik fyrir Arkadiusz Milik.
Það var þétt setið á Amsterdam ArenA en 52.472 manns mættu til að fylgjast með þessum stórleik hollensku stórveldanna sem eru í 2. og 3.sæti deildarinnar. Það var hinsvegar fátt um fína drætti innan vallar og endaði leikurinn með markalausu jafntefli en Feyenoord var töluvert líklegri aðilinn í leiknum.
Góð úrslit fyrir topplið PSV Eindhoven sem hefur nú sex stiga forskot á Ajax.
Athugasemdir