Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   sun 25. janúar 2015 15:27
Arnar Geir Halldórsson
Styttist í endurkomu Daniel Sturridge
Daniel Sturridge
Daniel Sturridge
Mynd: Getty Images
Daniel Sturridge, leikmaður Liverpool, er byrjaður að æfa með liðinu en hann greindi frá því á Twitter síðu sinni í dag.

Sturridge meiddist í landsliðsverkefni og hefur ekki spilað með Liverpool síðan í lok ágúst en hans hefur verið sárt saknað á Anfield.

Sturridge skoraði 21 mark í deildinni í fyrra en framherjar Liverpool hafa litlu skilað í vetur.

Liverpool leikur gegn Chelsea í undanúrslitum deildarbikarsins á þriðjudag en ólíklegt er að Sturridge taki þátt í þeim leik.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner