Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. febrúar 2015 13:00
Elvar Geir Magnússon
AS segir stirt samband milli De Gea og Van Gaal
De Gea í körfubolta með Angel Di Maria.
De Gea í körfubolta með Angel Di Maria.
Mynd: Getty Images
Markvörðurinn David de Gea er reglulega orðaður við Real Madrid en í slúðurpakkanum í morgun var sagt að hann væri nálægt því að skrifa undir nýjan samning við Manchester United.

Það eru aðeins 16 mánuðir eftir af núgildandi samningi De Gea.

Spænska blaðið AS segir að samband hans við knattspyrnustjórann Louis van Gaal sé stirt og þeir hafi ekki talast í mánuði.

Þá segir blaðið að Van Gaal neiti að hrósa spænska markverðinum.

De Gea hefur verið einn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu.
Athugasemdir
banner
banner