Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. febrúar 2015 21:58
Ívan Guðjón Baldursson
Berbatov: Arsenal má ekki vanmeta okkur
Mynd: Getty Images
Dimitar Berbatov var kátur með sigur Monaco á Emirates leikvanginum í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.

Berbatov skoraði annað mark leiksins í 3-1 sigri og sagði að lið eins og Arsenal megi ekki vanmeta andstæðinga sína í Meistaradeildinni.

,,Við höfum trú á getu okkar og ef ég á að vera heiðarlegur þá áttum við skilið að vinna í kvöld," sagði Berbatov eftir leikinn.

,,Við nýttum færin okkar og þetta er frábær sigur en viðureignin er ekki búin. Við eigum heimaleikinn eftir gegn mjög sterku liði.

,,Við erum góðir og Arsenal líka en í dag vildum við sigurinn meira en þeir. Við börðumst um hvern bolta og skoruðu þrjú mörk.

,,Lið eins og Arsenal mega ekki leyfa sér að vanmeta okkur. Ég veit ekki hvort það hafi verið tilfellið í kvöld, þetta er eitthvað sem þeir verða að spá í."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner