Luis Enrique, þjálfari Barcelona, var ánægður með sína menn eftir 2-1 sigur gegn Manchester City í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í gær.
Þá neitaði hann að gagnrýna Lionel Messi fyrir að klúðra víti á lokasekúndum leiksins, en mark þar hefði svo gott sem gulltryggt Barcelona sæti í 8-liða úrslitum.
Þá neitaði hann að gagnrýna Lionel Messi fyrir að klúðra víti á lokasekúndum leiksins, en mark þar hefði svo gott sem gulltryggt Barcelona sæti í 8-liða úrslitum.
,,Einungis þeir sem þora að taka víti geta klúðrað þeim," sagði Enrique eftir leikinn.
,,Ég myndi gefa liðinu mjög háa einkunn. Við vorum mjög góðir í fyrri hálfleik, en við þurfum líka að vinna á heimavelli. Markmiðið er alltaf að vinna, óháð úrslitunum hér."
,,Allir leikmenn City eru landsliðsmenn og við eigum von á mjög erfiðum leik."
Athugasemdir