Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mið 25. febrúar 2015 15:30
Magnús Már Einarsson
Gunnar Heiðar fiskaði víti gegn Kaka og félögum
Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Gunnar Heiðar Þorvaldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Smári Jökull Jónsson
Gunnar Heiðar Þorvaldsson og félagar í sænska félaginu Hacken eru komnir aftur til Svíþjóðar eftir æfingaferð í Bandaríkjunum.

Gunnar Heiðar og liðsfélagar hans léku þar gegn Orlando City sem er nýtt lið í MLS deildinni.

Brasilíski snillingurinn Kaka er á meðal leikmanna Orlando en Hacken sigraði leikinn 2-1. Gunnar Heiðar fiskaði vítaspyrnu í leiknum.

Þá sigraði Hacken einnig Fort Lauderdale Strikers 6-2 en Gunnar Heiðar skoraði tvö mörk í þeim leik.

Fort Lauderdale Strikers leikur í næstefstu deild í Bandaríkjunum en brasilíski framherjinn Ronaldo á hlut í félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner