Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 25. febrúar 2015 10:14
Magnús Már Einarsson
Keflavík vill fá Jónas Guðna
Jónas í leik með KR.
Jónas í leik með KR.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Keflavík hefur sýnt áhuga á að fá Jónas Guðna Sævarsson í sínar raðir frá KR samkvæmt heimildum Fótbolta.net.

Jónas Guðni er uppalinn hjá Keflavík en hann lék síðast með liðinu árið 2007.

Jónas er samningsbundinn KR út árið og samkvæmt heimildum Fótbolta.net hafa bikarmeistararnir ekki áhuga á að selja hann.

Fleiri félög hafa einnig lýst yfir áhuga á Jónasi en KR-ingar vilja halda honum innan sinna raða.

Aftur á móti er meiri óvissa með miðjumanninn Farid Zato en hann gæti mögulega farið frá KR.

Farid kemur til landsins á næstu dögum en möguleiki er á að hann fari í annað félag í Pepsi-deildinni.
Athugasemdir
banner
banner