Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 25. febrúar 2015 23:00
Ívan Guðjón Baldursson
Myndband: Sjáðu klúðrið hjá Giroud
Mynd: Getty Images
Olivier Giroud átti hræðilegt kvöld sem fremsti maður Arsenal í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Giroud átti sex skot í leiknum og ekkert þeirra hitti rammann, en franski sóknarmaðurinn hefði átt að skora tvö mörk í minnsta lagi.

Hér fyrir neðan má sjá versta klúður Giroud í leiknum þar sem hann fær boltann fyrir framan opið mark og skýtur honum yfir.

Arsenal tapaði leiknum 3-1 og þarf að skora minnst þrjú mörk í síðari viðureigninni sem verður í Mónakó þann 17. mars.


Athugasemdir
banner
banner
banner