Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 25. febrúar 2015 13:16
Elvar Geir Magnússon
Refsað fyrir rasisma stuðningsmanna
Þessi stuðningsmaður Steaua Búkarest tengist fréttinni ekki beint.
Þessi stuðningsmaður Steaua Búkarest tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Getty Images
Steaua Búkarest þarf að spila næstu tvo heimaleiki í Evrópukeppnum bak við luktar dyr.

Þetta tilkynnti UEFA í dag en auk þess fær félagið 20 þúsund evrur í sekt.

Stuðningsmenn liðsins voru með borða með texta sem innihélt rasisma á Evrópudeildarleik gegn Dynamo Kiev í Búkarest.

Steaua komst ekki upp úr riðli sínum í Evrópudeildinni og mun því taka út refsinguna á næsta tímabili.

Í fyrra var stuðningsmönnum liðsins bannað að ferðast í útileik gegn Álaborg eftir kynþáttaníð í leik gegn Ludogorets Razgrad í forkeppni Meistaradeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner