Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 25. febrúar 2015 14:57
Magnús Már Einarsson
Russell Crowe hefur áhuga á að kaupa Leeds
Russell Crowe.
Russell Crowe.
Mynd: Getty Images
Óskarsverðlaunahafinn Russell Crowe hefur lýst yfir áhuga á að kaupa Leeds United.

Hinn fimmtugi Crowe hefur verið mikill stuðningsmaður Leeds síðan í æsku.

Hann hefur nú spurt á Twitter hvort að hann eigi að kaupa Leeds.

Crowe á í dag rugby liðið South Sidney Rabbitohs í Ástralíu en hann hefur áhuga á að færa sig yfir í fótboltann.

Leeds hefur gengið í gegnum ýmis vandamál undanfarin ár en liðið er í dag í 14. sæti í ensku Championship deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner