Oldham Athletic hefur áhuga á því að ráða Paul Scholes sem nýjan knattspyrnustjóra í stað Lee Johnson sem er að taka við Barnsley. Þetta kemur fram í Daily Mail.
Oldham leikur í ensku C-deildinni og er í baráttu um sæti í umspili.
Oldham leikur í ensku C-deildinni og er í baráttu um sæti í umspili.
Scholes hefur verið sparkspekingur í sjónvarpi og pistlahöfundur síðan hann lagði skóna á hilluna en hann býr í Oldham og hefur oft mætt á leiki liðsins.
Oldham gæti boðið Scholes samning út tímabilið til að byrja með segir Daily Mail.
Athugasemdir