Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 25. febrúar 2017 14:04
Alexander Freyr Tamimi
Byrjunarlið Chelsea og Swansea: Gylfi byrjar á Brúnni
Skorar Gylfi á Stamford Bridge?
Skorar Gylfi á Stamford Bridge?
Mynd: Getty Images
Chelsea og Swansea mætast í ensku úrvalsdeildinni klukkan 15:00 í dag.

Chelsea er í góðri stöðu á toppi deildarinnar en Swansea er loksins komið á ágætis skrið með Gylfa Þór Sigurðsson fremstan í fararbroddi.

Gylfi er að sjálfsögðu á sínum stað í byrjunarliði Swansea á Stamford Bridge. Með honum í fremstu víglínu verða Wayne Routledge og Fernando Llorente.

Chelsea stillir að venju upp sterku liði, Diego Costa er fremstur og honum til aðstoðar eru Pedro og Eden Hazard. Thibaut Courtois er í markinu, en hann var tæpur.

Byrjunarlið Chelsea: Courtois, Azpilicueta, Luiz, Cahill, Moses, Kante, Fabregas, Alonso, Pedro, Hazard, Costa.

Byrjunarlið Swansea: Fabianski, Naughton, Fernandez, Mawson, Olsson, Fer, Cork, Carroll, Routledge, Llorente, Gylfi.
Athugasemdir
banner
banner
banner