Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 25. febrúar 2017 19:09
Elvar Geir Magnússon
Hvar er Mata?
Mata ekki með á morgun?
Mata ekki með á morgun?
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Manchester United hafa áhyggjur eftir að Spánverjinn Juan Mata var hvergi sjáanlegur þegar United ferðaðist til London í dag.

Á morgun leikur United deildabikarúrslitaleik gegn Southampon á Wembley.

Ljósmyndarar voru viðstaddir þegar United lagði upp í ferðalagið en viðvörunarbjöllur byrjuðu að hringja þegar Mata sást ekki.

Engin opinber skýring hefur verið gefin út.

Henrikh Mkhitaryan verður ekki með í leiknum þar sem hann meiddist í Evrópudeildarleiknum gegn Saint-Etienne á miðvikudaginn. Michael Carrick gæti þó tekið þátt í leiknum á morgun en hann þurfti að fara meiddur af velli í Frakklandi.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner