Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 25. febrúar 2017 21:33
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ísrael: Viðar með sitt níunda mark á árinu
Mynd: Getty Images
Maccabi Tel Aviv 2-0 Bnei Yehuda Tel Aviv
1-0 Barak Itzhaki ('10)
2-0 Viðar Örn ('90)

Viðar Örn Kjartansson var enn og aftur á skotskónum í Ísrael í kvöld þegar lið hans Maccabi Tel Aviv sigraði Bnei Yehuda Tel Aviv, markið sem Viðar skoraði var hans níunda á árinu.

Maccabi Tel Aviv komst yfir á 10. mínútu með marki frá Barak Itzhaki og Viðar Örn gulltryggði svo sigurinn á 90. mínútu

Viðar Örn er markahæstur í ísraelsku deildinni með 15 mörk, hann hefur skorað þremur mörkum meira en næsti maður.

Maccabi Tel Aviv og Hapoel Beer Sheva eru í harðri baráttu um toppsætið, liðin eru jöfn að stigum núna en Hapoel Beer Sheva á leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner