U17 ára lið kvenna vann í gær góðan sigur á jafnöldrum sínum frá Austurríki á æfingamóti sem fram fór í Skotlandi.
Þetta var síðasti leikur liðanna en áður hafði Ísland tapað gegn Skotlandi og Tékklandi. Austurríki sigraði hins vegar sína leiki.
Eina mark leiksins kom í seinni hálfleik en það var Signý Elfa Sigurðardóttir sem skoraði mark Íslands í leiknum.
Ísland spilaði frábærlega í leiknum og sigurinn kærkominn eftir fyrstu tvö töpin.
Jörundur Áki Sveinsson þjálfar U17 ára lið kvenna.
Athugasemdir