Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 25. febrúar 2018 19:25
Ívan Guðjón Baldursson
Guardiola: Þessi titill er fyrir Manchester City
Manchester City er deildabikarmeistari Englands 2018!
Manchester City er deildabikarmeistari Englands 2018!
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola er búinn að vinna sinn fyrsta titil við stjórnvölinn hjá Manchester City eftir átján mánuði í starfi.

Man City hafði betur gegn Arsenal í úrslitaleik deildabikarsins og vann auðveldan 3-0 sigur.

Pep er ánægður með titilinn og segir að nú fari öll einbeitingin í að reyna að vinna þá leiki sem eru eftir af tímabilinu.

„Það var mikilvægt að vinna þennan leik eftir tapið gegn Wigan. Við erum himinlifandi, þessi titill er fyrir Manchester City, ekki mig," sagði Pep að leikslokum.

„Við vorum ekki góðir í fyrri hálfleik og gerðum mikið af mistökum. Í síðari hálfleik vorum við frábærir og sýndum mikið hugrekki.

„Núna einbeitum við okkur að því að reyna að vinna restina af leikjum tímabilsins, bæði í úrvalsdeildinni og Meistaradeildinni."

Athugasemdir
banner
banner
banner