Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 25. febrúar 2018 22:01
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: SLH 
Neymar sneri sig - Gæti misst af leiknum gegn Real
Mynd: Getty Images
Neymar var í byrjunarliði Paris Saint-Germain er liðið mætti erkifjendunum í Marseille í franska boltanum í kvöld.

Neymar lagði þriðja mark PSG glæsilega upp fyrir Edinson Cavani í 3-0 sigri, en þurfti að fara meiddur af velli undir lokin.

Brasilíski snillingurinn sneri sig á ökkla og var borinn útaf meðan hann hélt fyrir andlitið af sársauka.

Heimamenn voru búnir með skiptingarnar og spiluðu síðustu mínútur leiksins manni færri. Það gerði lítið til, enda þremur mörkum yfir og með fjórtán stiga forystu á toppi deildarinnar. Marseille er í þriðja sæti eftir tapið.

Hægt er að sjá atvikið hér fyrir neðan, en líklegt er að Neymar missi af síðari leik 16-liða úrslita Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid.

Real vann fyrri leikinn 3-1 í Madríd og verður seinni leikurinn spilaður þriðjudaginn 6. mars.




Athugasemdir
banner
banner
banner