Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. febrúar 2018 12:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sterling verður fjarri góðu gamni í úrslitaleiknum
Mynd: Getty Images
Raheem Sterling mun missa af úrslitaleik enska deildarbikarsins í dag. Þetta herma enskir fjölmiðlar.

„Raheem hefur verið að glíma við vöðvameiðsli, ég veit ekki hvort hann verður tilbúinn á sunnudag," sagði Pep Guardiola, stjóri Manchester City á föstudag.

Times segir frá því í dag að Sterling verði ekki með í dag og að hann muni líka missa af næstu leikjum liðsins sem eru deildarleikir gegn Lundúnaliðunum Arsenal og Chelsea.

Þetta er mikið áfall fyrir City enda hefur Sterling verið einn af bestu leikmönnunum í frábæru City-liði á þessu tímabili.

City hefur þó líka fengið jákvæðar fréttir fyrir leikinn í dag þar sem Gabriel Jesus er sagður klár í slaginn og gæti spilað.
Athugasemdir
banner
banner
banner