Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   sun 25. febrúar 2018 14:28
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tyrkland: Lið Elmars stal stigi af toppliðinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Riezspor 1 - 1 Elazigspor
1-0 Samu ('12)
1-1 Adrian Hora ('90, víti)

Theódór Elmar Bjarnason og félagar í tyrkneska liðinu Elazigspor stálu stigi af Riezspor er liðin mættust í tyrknesku B-deildinni í dag. Leikurinn var að klárast rétt í þessu.

Elmar var í byrjunarliði Elazigspor að venju og spilaði allan leikinn.

Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Elazigspor því Samu kom heimamönnum í Riezspor yfir á 12. mínútu.

Staðan var 1-0 lengi vel og stefndi allt í sigur Riezspor þangað til dómarinn benti á vítapunktinn í uppbótartímanum og gaf Elazigspor vítaspyrnu. Rúmeninn Adrian Hora skoraði úr spyrnunni.

Lokatölurnar 1-1 en þetta er væntanlega stig sem Elazigspor tekur með glöðu geði þar sem Riezspor er topplið deildarinnar.

Elazigspor er í sjöunda sæti deildarinnar, einu stigi frá umspilinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner