Á laugardaginn spilar íslenska landsliðið mikilvægan leik gegn Kasakstan í Astana. Markahrókurinn Kolbeinn Sigþórsson er klár í slaginn en hann ræddi við Fótbolta.net í dag og segist tilbúinn til að byrja leikinn.
„Ég er tilbúinn í það. Ég spilaði 90 mínútur um síðustu helgi og 45 mínútur þar áður. Ég er í fínu standi og vonast til að vera klár 100%," segir Kolbeinn.
Leikurinn á laugardag verður innanhúss og á gervigrasi en afar kalt er í Kasakstan.
„Gervigrasið er í fínu standi og hægt að spila boltanum. Hann rennur vel og svo er ekki of kalt."
Rætt hefur verið um kröfur og væntingar í aðdraganda leiksins.
„Við gerum miklar kröfur sjálfir og förum inn í þennan leik til að vinna hann. Það er alveg klárt. Við verðum að vinna þennan leik ef við ætlum að halda okkur í baráttunni um að komast áfram. Þetta er skyldusigur. Það er bara þannig," segir Kolbeinn en viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir