Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   mið 25. mars 2015 11:00
Elvar Geir Magnússon
skrifar frá Astana í Kasakstan
Raggi Sig: Djöfull datt ég út þarna
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
,,Þetta leggst vel í mig. Þetta er einn af mikilvægari leikjunum því að þetta er leikur þar sem við búumst fastlega við að ná í þrjú stig," sagði Ragnar Sigurðsson varnarmaður íslenska landsliðsins við Fótbolta.net í dag.

,,Þetta verður mjög erfiður leikur. Þessi lið eru oft erfiðari heldur en þessi stóru. Þau berjast eins og vitleysingar og eru með kalla sem maður veit ekki hverjir eru en eru teknískir og sterkir. Þetta verður ekki rétt."

Leikurinn fer fram innandyra á gervigrasi en íslenska liðið fær að æfa þar alveg fram að leik á laugardag. Það hjálpar er það ekki? ,,Það er mjög mikilvægt.....Djöfull datt ég út þarna," sagði Raggi og hló eftir að hafa misst einbeitinguna í viðtalinu.

,,Það eru ekki margir vanir því að spila mikið á gervigrasi svo þetta er gott. Boltinn er ekki að hoppa og skoppa að óþarfi á þessu gervigrasi svo það er eitthvað jákvætt í þessu."

EIður Smári Guðjohnsen er mættur í hópinn á nýjan leik og Raggi fagnar því. ,,Það er mjög gott. Hann er mikilvægur fyrir okkur og með mikla reynslu. Ég vona að hann fái sem flestar mínútur inni á vellinum," sagði Raggi að lokum.

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Hvernig fer Víkingur - Breiðablik á sunnudag?
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner