„Þetta er leikur sem verður að vinnast," segir sóknarmaðurinn Viðar Örn Kjartansson fyrir leik Íslands gegn Kasakstan sem verður á laugardag. Viðar vonast eftir að fá mínútur.
„Maður gerir það alltaf en þetta er gríðarlega sterkt lið og ég geri engar kröfur. Maður er samt aldrei ánægður ef maður fær ekki að spila."
Tímabilið í Kína er farið af stað en þar spilar Viðar fyrir Jiangsu Sainty. Hann segir gæðin í deildinni meiri en hann reiknaði með.
„Þetta hefur komið mér á óvart og ég er búinn að spila þokkalega. Ég er kominn með tvö mörk í þremur leikjum og það er vonandi byrjunin á einhverju stóru. Ég ætla að ná að skora mikið í þessari deild."
„Það er fullt af áhorfendum á hverjum leik og fótboltinn góður. Þetta er mjög spennandi og betra en ég hélt."
Frægðarsól Viðars fer rísandi í Kína.
„Maður er stoppaður út á götu. Ég var stoppaður þegar ég var að borða í verslunarmiðstöð um daginn og 20 manns tóku myndir af sér með mér. Maður er allavega orðinn þekktur í borginni sem ég bý í," segir Viðar en viðtalið sem tekið var í Kasakstan í morgun má sjá í heild í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir