Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   lau 25. mars 2017 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Nainggolan ræddi við Conte - „Lofið mér sól og ég kem"
Radja Nainggolan.
Radja Nainggolan.
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn Radja Nainggolan, miðjumaður Roma, segist hafa rætt við Antonio Conte, stjóra Chelsea, um möguleg félagsskipti síðasta sumar. Hann segist til í að ræða við hann aftur, en aðeins ef veðrið batnar á Englandi.

Það var mikið rætt um það síðasta sumar að Conte hefði áhuga á Nainggolan og núna hefur miðjumaðurinn staðfest það að samskipti hafi átt sér stað.

„Já, ég talaði við hann," sagði Nainggolan. „Þeir voru mjög áhugasamir og vildu fá mig. Það er það eina sem ég get sagt."

Nainggolan er ekki hrifinn af veðrinu á Englandi.

„Ef þið getið lofað mér sól, þá skal ég koma," sagði Belginn léttur og bætti við: „Þegar félagsskiptaglugginn opnar, þá munum við tala saman aftur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner