Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 25. mars 2017 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Iwobi við stuðningsmenn: Þið þurfið að sýna meiri virðingu
Iwobi stendur við bakið á Wenger.
Iwobi stendur við bakið á Wenger.
Mynd: Getty Images
Alex Iwobi, sóknarleikmaður Arsenal, segir að stuðningsmenn félagsins verði að sýna stjóranum Arsene Wenger meiri virðingu.

Margir stuðningsmenn Lundúnarfélagsins eru komnir með nóg af Wenger og vilja sjá hann fara, en Iwobi er ekki sáttur með það.

„Þeir þurfa að sýna aðeins meiri virðingu að mínu mati," sagði Iwobi við Daily Mail. „Hann hefur verið hjá félaginu í 20 ár og hefur afrekað mikið," sagði Nígeríumaðurinn enn fremur.

Óljóst er hvort Wenger verður áfram hjá Arsenal eftir þetta tímabil, en samningur hans rennur út í sumar.

„Ég, persónulega, vill að hann verði áfram. Hann hefur verið frábær fyrir mig og ég mun alltaf standa við bakið á honum, sama hvað gerist," sagði Iwobi að lokum.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner