Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   lau 25. apríl 2015 12:40
Arnar Geir Halldórsson
Heimild: Þór 
Birkir til Reading á reynslu
Birkir Heimisson
Birkir Heimisson
Mynd: Thorsport.is
Birkir Heimisson, 15 ára miðjumaður Þórs á Akureyri, hélt nýverið til Englands til æfinga hjá enska B-deildarliðinu Reading.

Á heimasíðu Þórs segir að forsvarsmenn Reading hafi sett sig í samband við félagið á dögunum og óskað eftir að fá Birki á reynslu í um vikutíma.

Birkir hefur æft með unglingaliði Reading undanfarna daga og spilaði meðal annars æfingaleik með U-18 ára liðinu á miðvikudag og stóð sig með prýði.

Nokkrir Íslendingar hafa leikið með Reading í gegnum tíðina, þar á meðal Gylfi Sigurðsson sem hóf atvinnumannaferil sinn hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner