lau 25. apríl 2015 15:38
Arnar Geir Halldórsson
Byrjunarlið Man City og Aston Villa: Grealish byrjar
Hvað gerir ungstirnið gegn meisturunum?
Hvað gerir ungstirnið gegn meisturunum?
Mynd: Getty Images
Englandsmeistarar Manchester City fá Aston Villa í heimsókn í síðasta leik dagsins í enska boltanum.

Manuel Pellegrini stillir upp óbreyttu byrjunarliði frá síðasta leik en Wilfried Bony er mættur aftur á stjá eftir meiðsli og er á bekknum.

Tim Sherwood gerir þrjár breytingar á liðinu sem lagði Liverpool í undanúrslitum enska bikarsins um síðustu helgi.

Byrjunarlið Man City:Hart, Zabaleta, Demichelis, Mangala, Kolarov, Fernando, Lampard, Navas, Yaya Toure, Silva, Aguero

Byrjunarlið Aston Villa:Guzan, Bacuna, Okore, Vlaar, Richardson, Sanchez, Westwood, Cleverley, Delph, Grealish, Benteke.
Athugasemdir
banner