lau 25. apríl 2015 13:41
Arnar Geir Halldórsson
England: Óbreytt staða í Evrópumálum
Pelle skoraði tvö í dag
Pelle skoraði tvö í dag
Mynd: Getty Images
Southampton 2 - 2 Tottenham
1-0 Graziano Pelle ('29 )
1-1 Erik Lamela ('43 )
2-1 Graziano Pelle ('65 )
2-2 Nacer Chadli ('70 )

Mauricio Pochettino sneri aftur á St.Mary´s í dag þegar liðsmenn hans heimsóttu Southampton í mikilvægum leik í baráttunni um Evrópusæti.

Graziano Pelle skoraði fyrsta mark leiksins þegar hann kom heimamönnum yfir eftir vandræðagang í vörn Tottenham.

Erik Lamela jafnaði metin fyrir gestina á markamínútunni frægu og staðan í hálfleik jöfn.

Ronald Koeman setti Shane Long inn á 62.mínútu og nokkrum mínútum síðar lagði hann upp annað mark Pelle. Heimamenn því aftur komnir í forystu en aftur entist hún ekki lengi.

Fimm mínútum síðar jafnaði nefnilega Nacer Chadli metin fyrir Tottenham. Fleiri urðu mörkin ekki þrátt fyrir sjö mínútna uppbótartíma.

Eitt stig færir bæði lið upp um eitt sæti um stundarsakir en Liverpool getur endurheimt 5.sætið með sigri á WBA í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner