Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 25. apríl 2015 14:57
Arnar Geir Halldórsson
Ítalía: Birkir Bjarna tryggði sínu liði sigur
Birkir hefur reynst Pescara mikilvægur í vetur
Birkir hefur reynst Pescara mikilvægur í vetur
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Virtus Lanciano 0-1 Pescara
0-1 Birkir Bjarnason (´75)
Rautt spjald: Alberto Cerri, Virtus (´77), Antonio Aquilanti, Virtus (´90)

Birkir Bjarnason var á sínum stað í byrjunarliði Pescara þegar liði heimsótti Virtus Lanciano í Serie B í dag.

Fyrir leikinn voru liðin í 9. og 10.sæti og leikurinn því gífurlega mikilvægur en lið í sætum þrjú til átta fara í umspil um sæti í Serie A.

Birkir skoraði eina mark leiksins á 75.mínútu og tryggði þar með liði sínu gríðarlega sterkan útisigur.

Sigurinn fleytir Pescara upp í 6.sætið en baráttan um sæti í umspili er mjög hörð þegar fimm umferðir eru eftir af mótinu.
Athugasemdir
banner
banner