Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 25. apríl 2015 18:16
Arnar Geir Halldórsson
Rússland: Ragnar og félagar aftur á sigurbraut
Ragnar Sigurðsson
Ragnar Sigurðsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Krasnodar 1-0 Lokomotiv Moskva
1-0 Mauricio Pereira, víti (´37)

Ragnar Sigurðsson spilaði allan tímann í hjarta varnarinnar hjá Krasnodar í rússnesku úrvalsdeildinni í dag.

Liðið fékk Lokomotiv Moskva í heimsókn og Mauricio Pereira gerði eina mark leiksins úr vítaspyrnu. Krasnodar því aftur komið á sigurbraut eftir jafntefli gegn CSKA Moskva í síðustu umferð.

Ragnari og félögum hefur gengið allt í haginn á þessu ári en liðið hefur enn ekki tapað leik og er í góðri stöðu í 2.sæti deildarinnar þegar fimm umferðum er ólokið. Liðið er þó enn fimm stigum á eftir toppliði Zenit sem á einnig leik til góða.
Athugasemdir
banner