Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 25. apríl 2016 12:30
Magnús Már Einarsson
FH ætlar að fá sóknarmann áður en glugginn lokar
Mynd: Fótbolti.net - J.L.
FH ætlar að fá sóknarmann í sínar raðir áður en félagaskiptaglugginn lokar þann 15. maí næstkomandi.

„Þetta gerist ekki fyrir fyrsta leik en vonandi áður en glugginn lokar," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH við Fótbolta.net í dag.

FH mætir Þrótti í 1. umferð Pepsi-deildarinnar á sunnudag en Heimir vill fá liðsstyrk áður en félagaskiptaglugginn lokar.

„Við erum að leita að manni í fremstu stöðurnar. Á vængjunum eða fremst á miðjunni," sagði Heimir.

Að sögn Heimis eru FH-ingar að leita erlendis að leikmanni.
Athugasemdir
banner
banner