Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 25. apríl 2016 17:30
Magnús Már Einarsson
Kolo Toure: Sakho veit hvað mér finnst um hann
Félagarnir Kolo Toure og Mamadou Sakho.
Félagarnir Kolo Toure og Mamadou Sakho.
Mynd: Getty Images
Kolo Toure, varnarmaður Liverpool, segist þekkja stöðuna sem liðsfélagi hans Mamadou Sakho er í þessa stundina.

Sakho féll á lyfjaprófi á dögunum og bíður nú eftir niðurstöðu úr b-sýni áður en kemur í ljós hvort honum verði refsað.

Toure var sjálfur dæmdur í hálfs árs keppnisbann árið 2011 þegar hann féll á lyfjaprófi en hann sagðist hafa tekið megrunartöflur sem konan hans átti.

„Ég vil ekki muna eftir því af því að þetta var erfitt fyrir mig. Ég vil ekki tala um þetta því þetta var mjög erfitt," sagði Toure.

„Ég er ekki búinn að tala við Mama. Ég hef lent í þessari stöðu og þetta er virkilega erfitt. Þetta er einkamál en hann veit hvað mér finnst um hann."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner