Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mán 25. apríl 2016 23:26
Ívan Guðjón Baldursson
Mahrez hissa í viðtali: Hefur Drogba ekki unnið þessi verðlaun?
Mynd: Getty Images
Riyad Mahrez hefur átt magnað tímabil með Leicester og hlaut nafnbótina besti leikmaður tímabilsins á sunnudaginn.

Þannig fetar hann í fótspor leikmanna á borð við Eden Hazard, Luis Suarez, Gareth Bale, Robin van Persie, Wayne Rooney, Ryan Giggs, Cristiano Ronaldo og Steven Gerrard sem hafa hlotið verðlaunin á síðustu 10 árum.

Hér fyrir neðan er hægt að sjá myndband þar sem Mahrez er spurður út í hvernig honum líður með að hafa verið kjörinn besti leikmaðurinn. Í myndbandinu er kantmaðurinn hinn hógværasti og fer að hlæja þegar hann áttar sig á því að hann er fyrsti afríski leikmaðurinn til að hljóta verðlaunin.

„Ég vissi það ekki. Hefur Drogba aldrei unnið þessi verðlaun? Ekki Yaya? Það er mikill heiður að vera sá fyrsti frá Afríku til að hljóta verðlaunin. Ekki sá besti frá Afríku, heldur sá fyrsti!"

Mahrez byrjar að tala um Drogba eftir um 28 sekúndur af myndbandinu.


Athugasemdir
banner
banner
banner