Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 25. apríl 2016 18:54
Ívan Guðjón Baldursson
Ronaldo og Benzema verða með annað kvöld
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo verður með gegn Manchester City annað kvöld, þetta staðfestir Zinedine Zidane þjálfari Real Madrid.

Óttast var að Ronaldo yrði ekki í byrjunarliði Real gegn Man City eftir að hann missti af leik gegn Rayo Vallecano um helgina. Real lenti 2-0 undir í leiknum en Gareth Bale steig upp og gerði tvennu í góðri endurkomu stórveldisins og lauk leiknum með 3-2 sigri Real.

Þá verður Karim Benzema einnig með gegn Man City eftir að hafa haltrað af velli í sigrinum á Rayo Vallecano.

„Þeim líður vel í dag og ég býst við að þeir verði 100% tilbúnir fyrir leikinn," sagði Zidane.

„Það sem skiptir mestu máli á þessu stigi er að ná útivallarmarki og halda markinu hreinu fyrir seinni leikinn."
Athugasemdir
banner