Leicester City er ótrúlega nálægt sögulegum Englandsmeistaratitli eftir jafntefli Tottenham og West Brom fyrr í kvöld.
Leicester þarf ekki nema þrjú stig til að tryggja sér titilinn þar sem Tottenham er sjö stigum á eftir þegar þrjár umferðir eru enn óspilaðar.
Leicester þarf ekki nema þrjú stig til að tryggja sér titilinn þar sem Tottenham er sjö stigum á eftir þegar þrjár umferðir eru enn óspilaðar.
Leicester á næst erfiðan útileik á Old Trafford, en Jamie Vardy mun ekki vera í leikmannahóp toppliðsins vegna þess að hann er í leikbanni.
Vardy var rekinn af velli í 2-2 jafntefli gegn West Ham og missti því af 4-0 sigri á Swansea um síðustu helgi.
Vardy fékk tveggja leikja bann, einn leik fékk hann fyrir rauða spjaldið og annar bættist við fyrir mótmæli.
Harry Kane, sóknarmaður Tottenham, sagði eftir jafntefli liðsins gegn West Brom að titilbaráttunni sé ekki lokið meðan það er stærðfræðilegur möguleiki, enda sé fótbolti óútreiknanleg íþrótt.
Það verður áhugavert að sjá hvernig toppliðinu gengur án Vardy á Old Trafford, en til að hleypa lífi í titilbaráttuna þarf Tottenham að hafa betur í nágrannaslag gegn Chelsea.
Athugasemdir