Yaya Toure verður ekki með Manchester City gegn Real Madrid á morgun þegar liðið mætir Real Madrid í fyrri undanúrslitaviðureign liðanna. Toure meiddist í 4-0 sigri City gegn Stoke á laugardag og verður ekki klár í slaginn fyrir leikinn.
Fernando og Fernandinho verða því á miðjunni.
„Ég tel að Yaya verði frá. Brasilíumennirnir tveir hafa spilað vel saman, gegn Roma og þegar við slóum PSG út. Ég er bjartsýnn á að þeir muni standa sig vel," segir Manuel Pellegrini, stjóri City.
Miðvörðurinn Vincent Kompany, fyrirliði City, segist vera 100% klár í slaginn en hann er nýkominn til baka eftir að hafa verið frá í mánuð vegna kálfameiðsla.
Athugasemdir