Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 25. apríl 2017 06:00
Stefnir Stefánsson
Alexandar Marinkovic í Hött (Staðfest)
Alexandar Marinkovic
Alexandar Marinkovic
Mynd: Höttur
Höttur frá Egilsstöðum hefur samið við serbneskan markvörð að nafni Alexandar Marinkovic en hann er 29 ára gamall.

Marinkovic kemur til félagsins frá Mongólíu en þá hefur hann einnig leikið 40 leiki í Slóvensku deildinni. Marinkovic kemur frítt til félagsins þar sem að hann var laus undan samningi.

Mikið er vænst af honum í Héraði og bindur Höttur miklar vonir við Marinkovic sem kemur til með að standa vaktina í markinu hjá Hetti í sumar sem að leikur í 2. deildinni í sumar.

Höttur endaði tímabilið í fyrra í sjöunda sæti 2.deildar og ljóst er að félagið ætlar sér góða hluti í deildinni í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner