Hollenska félagið Almere City hefur sýnt Atla Sigurjónssyni áhuga en miðjumaðurinn sagði óvænt skilið við Breiðablik á dögunum.
Atli staðfesti þetta við Fótbolta.net í dag en hann æfði með hollenska félaginu á dögunum og gekk vel.
Þau mál eru í biðstöðu sem stendur og því hefur hann ekki farið í viðæður við íslensk félög á meðan.
Almere City er í 7. sæti næst efstu deildar í Hollandi eftir 36 umferðir.
Atli sem er 25 ára uppalinn Þórsari kom til Breiðabliks frá KR árið 2015.
Hann á að baki 49 leiki með Blikum og skoraði átta mörk fyrir félagið.
Athugasemdir