Petr Cech, markvörður Arsenal, segir að liðinu skorti ekki neina leiðtoga eftir að liðið kom til baka gegn Manchester City í undanúrslitum enska bikarsins um síðustu helgi.
Þrátt fyrir að vera komnir í úrslitaleik bikarsins þá segir hann að þó svo að liðinu takist að vinna keppnina. Muni það ekki bæta upp fyrir það ef liðinu tekst ekki að komast í meistaradeildina á næsta tímabili.
Arsenal mætir Chelsea í úrslitaleiknum á Wembley þann 27. maí eftir að liðinu tókst að koma til baka og vinna sterkan sigur á City í framlengingu á sunnudaginn síðastliðinn.
Cech segir að honum finnist gagnrýnin sem að leikmennirnir hafa fengið vera ósanngjörn.
„Ég held að það sé auðvelt að fela sig á bakvið setningar eins og „þeim skortir leiðtoga". Þú þarft að sjá hvað gerist bakvið tjöldin til að sjá raunverulega hvernig hlutunum er háttað hjá okkur." sagði Cech og hélt áfram, „Stundum koma tímar þar sem að þú undirbýrð þig fullkomnlega og gerir allt rétt en um leið og leikurinn hefst þá fer allur undirbúningurinn út um gluggann og allt gengur á afturfótunum."
„Við höfum átt svona erfiða tíma þegar liðið var að tapa leikjum sem við hefðum ekki átt að tapa. Augljóslega þá eykst pressan á manni og allt verður miklu erfiðara. Stundum finnuru lausnir á vandanum strax og stundum tekur það meiri tíma." sagði Cech að lokum.

Athugasemdir