Skráning er í fullum gangi í Draumaliðsdeild Fótbolta.net og Azazo. Keppni í Pepsi-deild kvenna hefst á fimmtudag og hægt er að búa til lið fram að þeim tíma.
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Guðbjörg Gunnarsdóttir, landsliðsmarkvörður, er klár með sitt lið fyrir sumarið.
„Það var virkilega erfitt að setja saman lið sem ég var fullkomlega sátt við en niðurstaðan varð 3-4-3 með blöndu af leikmönnum sem ég býst við að ausi inn stigum," sagði Guðbjörg þegar hún skilaði inn liðinu.

Liðið hjá Guðbjörgu
Sonný Lára er í markinu! Þegar hún hélt hreinu á móti Spáni á Algarve var hún sultuslök allan tíman sem segir mér að hún er klárlega að fara að henda í clean sheet í fullt af leikjum í Pepsi deildinni
Ég ætla að skjóta á að Grindavík verði spútnik liðið í ár og valdi 3 góðar þar, þar af einn fyrrum liðsfélaga minn og skalladrottninguna Carolina Mendez.
Fanndís var fyrst inní liðið mitt enda stigavél af bestu gerð og er gefin fyrirliði í fyrstu umferð.
Nýliðarnir í landsliðinu Agla María og Ingibjörg eru með, ég geri kröfu á stig frá þeim, annars bæti ég við óvæntum hrekkjum á vígsluna þeirra í næsta landsliðsverkefni!! Þær þurfa að læra að spila undir pressu :)
Ég er síðan með 3 ólíka framherja sem eiga eftir að setja nóg af mörkum!
Smelltu hér til að taka þátt í leiknum!
Sjá einnig:
Draumaliðsdeild Azazo - Hallbera velur sitt lið
Draumaliðsdeild Azazo - Dagný velur sitt lið
Draumaliðsdeild Azazo - Edda Sif velur sitt lið
Athugasemdir