Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   þri 25. apríl 2017 20:46
Hafliði Breiðfjörð
Championship: Jón Daði spilaði hálfleik - Huddersfield í umspil
Hudderfield tryggði sér sæti í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Hudderfield tryggði sér sæti í umspili um sæti í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.
Mynd: Getty Images
Wolves 0 - 1 Huddersfield
0-1 Isaiah Brown ('31 )

Jón Daði Böðvarsson var í byrjunarliði Wolves sem tapaði 0-1 gegn Huddersfield í ensku Championship deildinni í kvöld.

Jón Daði var tekinn af velli í hálfleik.

Eina mark leiksins skoraði Isaiah Brown eftir hálftíma leik með góðu skoti fyrir utan teig sem fór í bláhornið niðri.

Þetta var stór sigur fyrir gestina í Huddersfield því með þessu tryggði liðið sér sæti í umspili umsæti í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í sögu félagsins. Liðið er nú í þriðja sæti deildarinnar með 81 stig en Wolves er í 15. sæti með 55 stig.

Athugasemdir
banner
banner
banner