Fótbolti.net er þessa dagana að hita á fullu upp fyrir Íslandsmótið í fótbolta sem hefst um komandi helgi. Verið er að kynna spá fyrir mótið en seinna í dag verður það lið sem er í 3. sæti í spánni kynnt til leiks.
Víkingi Ólafsvík er spáð neðsta sætinu en samkvæmt könnun sem var á forsíðunni spá 63% lesenda síðunnar að Ólsarar muni falla í sumar.
Af nýliðunum tveimur hafa lesendur meiri trú á KA en Grindavík.
Fyrstu þrír leikir Pepsi-deildar karla verða leiknir á sunnudaginn og hinir leikir fyrstu umferðar verða á mánudag.
Komin er inn ný könnun á forsíðuna.
Athugasemdir