Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 25. apríl 2018 13:30
Magnús Már Einarsson
Afmælisgjöf Fjölnis - Ódýrara inn fyrir 30 ára og yngri
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir fagnar 30 ára afmæli sínu í ár en félagið var stofnað í Grafarvogi árið 1988.

Í tilefni af afmælinu hefur Fjölnir ákveðið að hafa lægra miðaverð á leiki í Pepsi-deildinni í sumar fyrir 30 ára og yngri.

Miðaverð á leiki Fjölnis í sumar verður 1000 krónur fyrir stuðningsmenn sem eru 30 ára og yngri.

Fyrsti heimaleikur Fjölnis fer fram í Egilshöll á laugardag klukkan 16:00 þegar KA kemur í heimsókn.

Fjölnir ákvað að byrja í Egilshöll þar sem Extra-völlurinn er ekki klár eftir veturinn.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner