Ótrúleg ummæli Daniele De Rossi, fyrirliða Roma, eftir 5-2 sigurinn gegn Liverpool í gær hafa vakið mikla athygli.
Roma átti engin svör lengi vel gegn Liverpool og lenti 5-0 undir þar sem Mo Salah og Roberto Firmino skoruðu tvö mörk hvor.
Roma átti engin svör lengi vel gegn Liverpool og lenti 5-0 undir þar sem Mo Salah og Roberto Firmino skoruðu tvö mörk hvor.
„Þar sem ég hef ekki horft á leikinn aftur væri rangt af mér að greina það hvað fór úrskeiðis taktískt. Liverpool er sterkt lið og gerði vel en við áttum flottar fyrstu 20-25 mínútur," sagði De Rossi áður en hann líkti leikstíl Liverpool við kraftabolta.
„Þeir spörkuðu boltanum langt aftur og aftur, hvar sem þeir voru á vellinum. Það er erfitt að vernda svæði þegar það eru leikmenn sem eru alltaf sneggri en þú sjálfur."
Seinni viðureignin verður í Róm á miðvikudagskvöld.
Sjá einnig:
Innkastið - Salah stoppar ekki
Athugasemdir