Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 25. maí 2013 15:54
Ívan Guðjón Baldursson
1. deild: KF skellti KA og Grindavík valtaði yfir BÍ/Bolungarvík
Bóndinn skoraði í sigri KF.
Bóndinn skoraði í sigri KF.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Tveimur fjörugum leikjum var að ljúka í 1. deild karla þar sem Grindvíkingar völtuðu yfir BÍ/Bolungarvík á meðan KF lagði KA óvænt.

KA sem var spáð í toppbaráttu 1. deildarinnar tapaði fyrir KF við slæmar aðstæður á Ólafsfjarðarvelli. Óvænt úrslit en KF var spáð neðsta sæti.

KA komst yfir með mark úr vítaspyrnu í fyrri hálfleik en leikmenn KF áttu frábæra endurkomu. Mikið áfall fyrir KA sem byrjar tímabilið ekki vel og tapaði á dögunum fyrir Magna í bikarnum.

Scott Ramsay skoraði tvö frábær aukaspyrnumörk gegn BÍ/Bolungarvík sem var í tómu tjóni í leiknum og missti meðal annars Alejandro Munoz markvörð sinn af velli, en hann átti skelfilegan leik í markinu.

Frekari umfjöllun birtist síðar.

Grindavík 6 - 1 BÍ/Bolungarvík
1-0 Magnús Björgvinsson ('20)
1-1 Alexander Veigar Þórarinsson ('42)
2-1 Stefán Þór Pálsson ('45)
3-1 Scott Ramsay ('53)
4-1 Scott Ramsay ('66)
5-1 Stefán Þór Pálsson ('73)
6-1 Magnús Björgvinsson ('83, víti)
Rauð spjöld: Sigurgeir Sveinn Gíslason ('62) & Alejandro Munoz ('81), BÍ/Bolungarvík

KF 4 - 1 KA
0-1 Hallgrímur Már Steingrímsson ('33, víti)
1-1 Jón Björgvin Kristjánsson ('35)
2-1 Páll Sindri Einarsson ('59)
3-1 Milos Glogovac ('65)
4-1 Halldór Logi Hilmarsson ('80)
Slapp
banner
banner