Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 25. maí 2013 16:10
Ívan Guðjón Baldursson
Heimild: Úrslit.net 
3. deild: Almar Daði skoraði þrennu gegn Magna
Mynd: Jóhanna Hauksdóttir
Leiknir F. 3 - 0 Magni
1-0 Almar Daði Jónsson ('38)
2-0 Almar Daði Jónsson ('50)
3-0 Almar Daði Jónsson ('62)

Leiknir Fáskrúðsfirði var ekki í erfiðleikum með Magna þegar liðin mættust í Fjarðabyggðarhöllinni í eina leik dagsins í 3. deild karla.

Almar Daði Jónsson skoraði öll mörk Leiknis sem er nú með fullt hús stiga og markatöluna 14-1 eftir þrjá fyrstu leikina.

Þetta er annað þriggja marka tapið hjá Magna í öðrum leik liðsins í deildinni og er liðið því stigalaust eftir tvo leiki með markatöluna 0-6.

Upplýsingar fengnar af Úrslit.net
Slapp
banner