Nú er komið að slúðurpakka dagsins og er hann troðfullur af slúðurfréttum frá helstu deildum Evrópu þar sem nokkur af stærstu nöfnum knattspyrnunnar gætu verið á förum.
Arsenal fylgist með Wayne Rooney og er félagið reiðubúið að breyta launabyggingunni til að fá leikmanninn til sín. Þessi 27 ára sóknarmaður er einnig orðaður við Paris St-Germain, Monaco og Chelsea. (Daily Mirror)
David Moyes vill taka Marouane Fellaini með sér til Old Trafford. (The Guardian)
Jose Mourinho vill taka Luka Modric með sér til Chelsea. Ef Mourinho verður ráðinn þá mun hans fyrsta verk vera að bjóða 30 milljónir punda í Modric. (The Sun)
Santos hefur samþykkt tvö tilboð í sóknarmann sinn, Neymar. Ekki hefur verið staðfest hvaðan tilboðin koma en nokkuð öruggt er að Barcelona og Real Madrid séu félögin tvö. (Daily Mail)
Liverpool er búið að bjóða 3 milljónir punda í ganverska vinstri kantmann Porto, Christian Atsu. (Daily Mirror)
Real Madrid ætlar að kanna hvar Liverpool stendur þegar það kemur að Luis Suarez með því að bjóða í leikmanninn. Atletico Madrid og Bayern Munchen eru einnig talin hafa áhuga. (Daily Mail)
Manchester City berst við Real Madrid um Edinson Cavani, sóknarmann Napoli, sem fer líklega ekki á minna en 60 milljónir punda. (The Sun)
Sergio Aguero ætlar sér ekki að fara frá Manchester City þrátt fyrir áhuga Real Madrid. (Daily Telegraph)
Fulham undirbýr 4 milljón punda boð í Darren Bent, sóknarmann Aston Villa. Markvörður Roma, Maarten Stekelenburg, er einnig á leið til félagsins fyrir 2 milljónir punda. (Daily Express)
Paul Lambert, knattspyrnustjóri Aston Villa, segir sóknarmanni sínum Christian Benteke að hunsa áhuga Tottenham og Arsenal. (talkSPORT)
Ashley Williams, fyrirliði Swansea, er sagður vera á óskalista Arsene Wenger. (talkSPORT)
Alexis Sanchez, 24 ára sóknarmaður Barcelona, segist vilja vera áfram á Nývangi þrátt fyrir áhuga Manchester City og Juventus. (Sky Sports)
Rafael Benitez mun skrifa undir tveggja ára samning við Napoli í næstu viku. (Daily Mirror)
Roberto Martinez er á Spáni að íhuga framtíð sína. Everton er talið hafa áhuga á honum ásamt nokkrum spænskum félögum. (Daily Mail)
Zinedine Zidane gæti orðið yfirmaður íþróttamála hjá Real Madrid og hefur hann gífurlega mikinn áhuga á Gareth Bale, sem hann lýsir sem þriðja besta leikmanni heims. (Sky Sports)
Frank Lampard vonast til að John Terry fylgi fordæmi hans og skrifi undir nýjan samning við Chelsea. (Sky Sports)
Joaquin, kantmaður Malaga, er líklega á leið til Fiorentina í næstu viku. (Inside Spanish Football)
Rafael Benitez vill taka Jan Vertonghen og Lucas Leiva með sér úr ensku úrvalsdeildinni til Napoli. (Football-Italia)
