Borussia Dortmund og FC Bayern mætast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar á Wembley klukkan 18:45 í kvöld.
Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, og Bjarni Jóhannsson, þjálfari KA, hafa spáð í Meistaradeildina fyrir Fótbolta.net á þessu tímabili. Hér er spá Bjarna Guðjóns fyrir sjálfan úrslitaleikinn.
Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, og Bjarni Jóhannsson, þjálfari KA, hafa spáð í Meistaradeildina fyrir Fótbolta.net á þessu tímabili. Hér er spá Bjarna Guðjóns fyrir sjálfan úrslitaleikinn.
Borussia Dortmund 2 - 1 FC Bayern
Það er allt með því að Bayern vinni en ég ætla samt að spá Dortmund sigri. Þeir eru svakalega sterkir varnarlega eins og Bayern eru reyndar líka. Dortmund eru mjög góðir í skyndisóknum og ég held að þeir nái að klára þetta.
Maður heyrir Robben og fleiri tala um að Bayern verði að vinna eftir að hafa tapað síðast og að þeir megi ekki klúðra þessu í þetta skipti. Þegar þú verður að vinna eitthvað þá getur það verið erfitt.




