Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
banner
   lau 25. maí 2013 17:01
Ívan Guðjón Baldursson
Leikur ÍBV og Fylkis færður - Verður um næstu helgi
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
ÍBV og Fylkir áttu að mætast sunnudaginn 9. júní í Pepsi-deild karla en leiknum hefur verið flýtt fyrir um viku vegna landsliðserinda Tonny Mawejje.

Mawejje er 26 ára gamall miðjumaður sem hefur verið leikmaður ÍBV síðan 2009 og hefur leikið yfir 40 landsleiki með landsliði Úganda.

Leikurinn verður því sunnudaginn 2. júní sem þýðir að bæði lið þurfa að leika þrjá leiki á sjö dögum frá 26. maí - 2. júní, tvo í deild og einn í bikar.

Fylkir er með tvö stig eftir fyrstu fjóra leiki tímabilsins en Eyjamenn eru með sjö stig.
Slapp
banner