Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   lau 25. maí 2013 17:45
Ívan Guðjón Baldursson
Meistaradeildin: Byrjunarliðin í úrslitaleiknum
Stærsti leikur ársins hefst eftir klukkutíma í opinni dagskrá á Stöð 2 Sport þar sem Bayern Munchen og Borussia Dortmund mætast í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á Wembley.

Ljóst er að mikill hiti er kringum Wembley en hópslagsmál voru milli stuðningsmanna liðanna í höfuðborg Englands fyrir leikinn þar sem nokkrir voru sendir á spítala og lögregla þurfti að stöðva átök.

Bæði lið stilla upp hefðbundnum byrjunarliðum í 4-2-3-1 uppstillingu. Í lið Borussia Dortmund vantar Mario Götze sem er frá vegna meiðsla, en hann er á leið til Bayern í sumar.

Mario Mandzukic heldur sætinu sem fremsti maður Bayern eftir að hafa átt frábært tímabil og tekið byrjunarliðssætið af Mario Gomez.

Bayern Munchen (4-2-3-1): Neuer - Lahm, Boateng, Dante, Alaba - Martinez, Schweinsteiger- Robben, Muller, Ribery - Mandzukic.

Borussia Dortmund (4-2-3-1): Weidenfeller - Piszczek, Subotic, Hummels, Schmelzer - Bender, Gundogan - Blaszczykowski, Reus, Grosskreutz - Lewandowski.

Sjá einnig:
Smelltu hér til að fylgjast með leiknum í textalýsingu
Slapp
banner